13. júní 2010
Nesbyggðarralli á Reykjanesi lokið
Brotinn gírkassi að morgni laugardags eftir vandræði á föstudegi.
Nesbyggðarralli á Reykjanesi lauk í gær með bráðskemmtilegum nýjum sérleiðum í bland við gamla góða Djúpavatn. Því miður fór keppnin ekki að óskum hjá okkar liði því eftir vandræði með gírkassa á sérleiðum föstudags (sífellt að detta úr gír) þá brotnaði gírkassi á ferjuleið að Djúpavatni - óskiljanlegur og óheppilegur endir á ralli sem okkur hafði mikið hlakkað til að taka þátt í og klára.
Við viljum skila hamingjuóskum til sigurvegaranna Jóns Bjarna og Borgars ásamt Hilmari og Stefáni sem voru rétt á eftir í öðru sæti, þéttur og flottur akstur á öllum leiðum. Þá eiga Marian og Jón Þór heiður skilið fyrir að hafa skilað sér í endamark og það í þriðja sæti eftir viðburðaríkt rall.
Þá eiga AÍFS menn heiður skilið fyrir að hafa haldið svona bráðskemmtilegan og vel skipulagðan viðburð og er alveg klárt að þetta mun auka veg sportsins fyrir sunnan - glæsileg frammistaða hjá þeim.
Næsti viðburður verður á Sauðárkróki þann 24. júlí þannig að tíminn fram að því verður notaður til að koma því í lag sem þarf og mæta svo eldhressir og verulega grimmir norður :)
Við munum bæta við myndum og vídeóum á síðuna hér og á Facebook eftir sem berst til okkar, en það er mjög gaman að sjá hve margir eru farnir að fylgjast með sportinu og birta myndir og videó, okkur öllum til ánægju :)
Glæsilegt videó frá Rúnari framleitt fyrir AÍFS: http://vimeo.com/12529731
Til baka




