07. júní 2010

Suðurnesjarall 2010

11. - 12. júní á heimaslóðum

Nú er komið að því! Suðurnesjarallið 2010 er um næstu helgi - en undirritaður hefur beðið lengi lengi lengi (OK - ekki nema eitt ár frá fyrsta ralli undirritaðs...) eftir því að fá að keppa í ralli á heimaslóðum sínum á Reykjanesinu.
 
Að þessu sinni verður rallið sett upp á mjög skemmtilegan og áhorfendavænan máta, en það samanstendur af 12 stuttum sérleiðum (Keflavíkurhöfnin, Nikkelsvæðið, gamli Patterson flugvöllurinn, Helguvík og Ökugerði Nesbyggðar við Grindavíkurafleggjara) og svo tveimur ferðum um Djúpavatn norður.
 
Hefst rallið kl. 18:00 á föstudag og stendur fram á laugardagssíðdegi en hvet ég alla sem hafa áhuga á að kíkja á okkur að skoða www.aifs.is fyrir frekari upplýsingar um hvar og hvenær er best að staðsetja sig til að sjá skemmtilegheitin :)
 
Undirbúningurinn stendur nú sem hæst en þær bilanir sem voru að hrjá okkur í síðasta ralli hafa nú verið leystar þannig að okkur hlakkar gífurlega til að hefja keppni á ný - hvet þá sem hafa áhuga að kíkja í keppnisskoðun á fimmtudaginn kl. 18:00 í Pittinum, klúbbhúsnæði AIFS uppi á Ásbrú, og líta þar öll öflugustu keppnistæki landsins augum, en heyrst hefur að allir öflugustu bílarnir séu með og jafnvel gömul (en þó síung) rallýandlit muni taka þátt eftir langt hlé.....
 
Kíkið á Video hér á síðunni til að sjá stutt myndbrot frá Elvaro Media sem hann setti saman fyrir AIFS, mjög svalt... :)
 
Kveðjur,
Alli
Til baka
Fréttir
Undirbúningur fyrir 2011 hafinn!
 Undirbúningur okkar fyrir keppnistímabilið 2011 er kominn af stað :)
>>
Rallý Reykjavík 2010 !
Maraþonið framundan...
>>
Viðburðadagatal 2010
 
1. - 2. maí Rallý sýning 2010
1. maí Sprettrall BÍKR
21. - 22. maí Rallý Suðurland BÍKR
11. júní Rallý Suðurnes AIFS
17. júní Bíladagar Akureyri
26. júní Lex Games 10
24. júlí Rallý Skagafjörður BS
12. - 14. ágúst Rallý Reykjavík BÍKR
9. september Rallý Snæfellsnes BÍKR
3. október Rallý BÍKR