23. maí 2010

Vorralli BÍKR lokið

3. sæti í fyrsta ralli.

Í gær var haldið Vorrall BÍKR og voru keyrðar sérleiðar í nágrenni Þingvalla í stórkostlegu veðri og létu mjög margir áhorfendur sjá sig á svæðinu.
 
Undirbúningurinn var á tæpasta vaði hjá okkur í X rallý þar sem keppnisbifreiðin losnaði ekki úr tolli fyrr en í lok dags á fimmtudaginn - en samstillt átak stórkostlegs þjónustuliðs gerði það að verkum að við komumst í ræsingu að morgni laugardags á Hengil.
 
Þar byrjaði keppnin ekki vel fyrir okkur því bíllinn drap á sér í starti og fór ekki í gang næstu 20 sekúndurnar og kom í ljós þegar leið á daginn að það var vegna tölvuvandræða sem héldu áfram að trufla okkur.
 
Næsta sérleið sem var ekin var um Lyngdalsheiði og náðum við þar 4. besta tíma (7:24 - 3 sek á eftir 2. og 3. hraðasta tíma) en þetta var í fyrsta sinn sem við keyrðum bílinn á möl. Vegna áframhaldandi tölvuvandræða urðum við að keyra hægt hálfa sérleiðina tilbaka um Lyngdalsheiði til að geta klárað sérleiðina þar sem bíllinn virtist eyða margföldu bensíni á við það sem áætlað var og eðlilegt gat talist. Náði næsti bíll okkur rétt í endamarkinu og tapaðist því talverður tími þar. En meira bensíni var reddað og við héldum áfram.
 
Næsta sérleið var um Bolabás en þar settum við hraðasta tíma í fyrsta sinn sem svo hélt áfram þar sem við settum hraðasta tíma á 5 sérleiðum og næst hraðasta tíma á 4 sérleiðum af 12. Vegna ofangreindra tölvuvandræða var útlit fyrir að við gætum ekki haldið áfram þegar leið á daginn en eftir talsverðan tíma við að reyna að finna útúr vandamálinu (sem varð til þess að við vorum seinir á tímavarðstöð og fengum 60 sekúndna refsingu fyrir) tókst að púsla bílnum saman til að við gætum keppt áfram.
 
Niðurstaðan varð, þrátt fyrir ofangreind vandræði, 3. sæti sem við erum afar ánægðir með, og hlakkar okkur afar mikið til næsta ralls sem verður haldið á Suðurnesjunum 11.  - 12. júní.
 
Sérstakar þakkir fær þjónustuliðið fyrir framúrskarandi samvinnu og vinnubrögð - Ísak, Þröstur, Steinar, Gummi Snorri, Valdi og Hilmar -  það verður afar gaman að keppa með þessum heiðursmönnum í allt sumar :)
 
Alli & Heimir
X rallý
Til baka
Fréttir
Undirbúningur fyrir 2011 hafinn!
 Undirbúningur okkar fyrir keppnistímabilið 2011 er kominn af stað :)
>>
Rallý Reykjavík 2010 !
Maraþonið framundan...
>>
Viðburðadagatal 2010
 
1. - 2. maí Rallý sýning 2010
1. maí Sprettrall BÍKR
21. - 22. maí Rallý Suðurland BÍKR
11. júní Rallý Suðurnes AIFS
17. júní Bíladagar Akureyri
26. júní Lex Games 10
24. júlí Rallý Skagafjörður BS
12. - 14. ágúst Rallý Reykjavík BÍKR
9. september Rallý Snæfellsnes BÍKR
3. október Rallý BÍKR